Þetta er fyrsta fréttin

Umhverfismengun á Íslandi, vatn og vatnsgæði Ráðstefna þann 22. mars 2013, Nauthól, Reykjavík

 Umhverfismengun á Íslandi – vatn og vatnsgæði

Vísindaráðstefna haldin í anda þema Sameinuðu þjóðanna ársins í ár, „samvinna um vatn".

Markmið ráðstefnunnar er að fá yfirsýn yfir nýlegar rannsóknir á gæðum vatns á Íslandi með áherslu á áhrif vatnsnýtingar, landnýtingar og mengunar í vatni og sjó.

Föstudaginn 22. mars 2013, Nauthóll, Reykjavík

Dagskrá

Fundarstjórar:

Gísli Jónsson, Geislavarnir Ríkisins og Sophie Jensen, Matís

Opnun ráðstefnu

Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar

Verndun vatnsgæða í Reykjavík

Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur

Náttúrulegt efnainnihald í neysluvatni

 María Gunnarsdóttir, nýdoktor Vatnaverkfræðistofu Háskóla Íslands

Örveruflóra Elliðavatns og Elliðaáa

Kristín Elísa Guðmundsdóttir, M.Sc. Matís og Háskóla Íslands

Styrkur uppleystra efna í írennsli og útfalli Þingvallavatns

 Eydís Salome Eiríksdóttir, doktorsnemi Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands

Vatnsvernd og gæði vatns

Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur

Efnamagn í afrennsli af ræktarlandi

Björn Þorsteinsson, prófessor Landbúnaðarháskóla Íslands

Leiða íslenskir barrskógar til súrnunar straumvatns?

Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor Landbúnaðarháskóla Íslands

Kvikasilfur í urriða í 12 stöðuvötnum á Íslandi

Guðjón Atli Auðunsson, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Mengun við strendur Íslands

Erla Sturludóttir, doktorsnemi Matís og Háskóla Íslands

Ráðstefnulok

Kristín Ólafsdóttir, verkefnastjóri Ranns. í lyfja- og eiturefnafræði HÍ

Aðgangur er ókeypis en þar sem sætafjöldi er takmarkaður er forskráning fyrir þátttöku mikils metin.

Ágrip allra erinda og veggspjalda má finna á www.matis.is/um-matis-ohf/vidburdir/nr/3476

Síðasti skráningadagur er

20. mars 2013  á: umhverfi@matis.is

Vinsamlegast sendið nafn, fyrirtæki og tölvupóstfang