Sjósundsiðkendur á Akureyri; næsta sjósýnataka verður í apríl n.k.

Ágætu sjósundsiðkendur á Akureyri. Næsta sjósýnataka verður í apríl mánuði n.k. og verða niðurstöður kynntar á heimasíðu HNE og Norðurorku. Sjá einnig fyrri tilkynningu dags. 7. febrúar s.l.

"Ábending til sjósundsiðkenda á Akureyri

Almennt - 07. febrúar 2014 - María Markúsdóttir - Lestrar 41

Niðurstöður úr sjósýnatökum meðfram strandlengjunni þann 21.janúar sl. sýna að magn saurkólíbaktería er yfir viðmiðunarmörkum á flestum sýnatökustöðum, þ.á.m. sýnatökustöðum við Strandgötu og Hof.   Samkvæmt reglugerð nr. 798/1999, um fráveitur og skólp, m.s.br., eru viðmiðunarmörk fyrir saurkólíbakteríur í strandsjó nálægt útivistarsvæðum 100 bakteríufrumur í 100 ml af sjó (100 cfu/100 ml).    Í sýni sem tekið var við Strandgötu mældist fjöldinn 790/100 ml og í sýni sem tekið var við Hof mældist fjöldinn 240/100 ml.   Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra getur af þessum sökum ekki mælt með sjósundi á meðan slíkar aðstæður eru fyrir hendi."